Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur þann 5. desember 2012 samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Völuteigur 25–29, sem hlotið hefur meðferð skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var grenndarkynnt 25. október 2012 með athugasemdafresti til og með 23. nóvember 2012. Breytingin felst í því að vesturmörk lóðarinnar færast til á parti og verða samsíða húsinu. Við þetta stækkar lóðin um þríhyrning sem er 315,5 m². Skipulagsbreytingin hefur hlotið þá meðferð sem lög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi. F.h. Mosfellsbæjar, 6. desember 2012, Finnur Birgisson skipulagsfulltrúi. |