Eignamat í árslok.
Samkvæmt 2. tölul. 73. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal telja búpening til eignar með verði er ríkisskattstjóri ákveður til eins árs í senn. Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 213/2001, um skattalega meðferð á bústofnsbreytingu og kaupverði lífdýra í landbúnaði, skal færa bústofn allan í ársbyrjun á bústofnsskýrslu með því verði sem ríkisskattstjóri ákveður sbr. framangreint.
Ríkisskattstjóri hefur ákveðið eftirfarandi mat á búpeningi í árslok 2014, álagningarárið 2015,vegna bústofnsskýrslu fyrir það álagningarár:
kr.
Mjólkurkýr
113.000
Holdakýr og naut
120.000
Kvígur, 1 1/2 árs og eldri
91.000
Geldneyti
65.000
Kálfar, yngri en 1/2 árs
14.000
Ær og sauðir
7.800
Hrútar
12.100
Gemlingar
7.000
Geitur
3.900
Hross á 14. vetri og eldri
18.000
Hross á 5. – 13. vetri
36.000
Fulltamin reiðhross á 5. – 13. vetri
150.000
Önnur nýtanleg reiðhross
75.000
Verðlaunahross á 5. – 13. vetri
210.000
Kynbótahestar á 5. – 13. vetri
300.000
Verðlaunaðir kynbótahestar á 5. – 13. vetri
400.000
Tryppi á 2. – 4. vetri
12.000
Folöld
8.500
Hænsni, eldri en 6 mánaða
940
Varphænsni 6 mánaða og yngri
635
Kjúklingar
235
Endur
820
Gæsir
1.640
Kalkúnar
2.460
Gyltur
37.000
Geltir
55.000
Grísir
8.850
Kanínur
5.000
Minkar:
Karldýr
7.500
Kvendýr
Hvolpar
0
Refir:
Karldýr og kvendýr
6.000
Önnur ótilgreind dýr nýtt í rekstri
Reykjavík, 9. desember 2014.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.