1. gr. Táknmálskennsla. Fyrir táknmálskennslu skal innheimta eftirfarandi: | | | | kr. | | a. | Almenn táknmálsnámskeið, einstaklingar (20 kennslustundir, ásamt námsefni) | | 16.640 | | b. | Almenn táknmálsnámskeið, hópar (20 kennslustundir, ásamt námsefni) | | 128.000 | | c. | Námskeið á framhaldsskólastigi (1 eining) | | 107.520 | | d. | Námskeið í grunnskóla (30 kennslustundir) | | 179.200 |
Fyrir námskeið af annarri lengd skal innheimta hlutfallslega miðað við stundafjölda. Fjölskyldur heyrnarlausra barna skulu þó undanþegnar greiðslu námskeiðsgjalda á skipulögðum fjölskyldunámskeiðum. Foreldrar táknmálstalandi barna og fullorðnir döff einstaklingar geta sótt um á fjölskyldunámskeiðum fyrir sína nánustu aðstandendur. Í gjaldi táknmálskennslu er gert ráð fyrir því að hlutfall kennslukostnaðar sé 70%, hlutfall húsnæðis- og tækjakostnaðar 10%, hlutfall annars rekstrar og stjórnun 20%. Heimilt er að veita hlutfallslegan afslátt af námskeiðsgjöldum í samræmi við framangreinda sundurliðun, allt að 20%, þegar aðrir aðilar leggja til húsnæði, tæki og umsjón vegna námskeiðs. Um táknmálskennslu á háskólastigi skal gera sérstakan samning milli Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, og viðkomandi háskólastofnunar, um greiðslur fyrir vinnu við kennslu. Innheimta skal kr. 5.067 fyrir hverja vinnustund samkvæmt þessari málsgrein. 2. gr. Ráðgjöf, túlkun og greining. Fyrir útselda vinnu sérfræðings skal innheimta eftirfarandi: | | | | kr. | | a. | Almenn ráðgjöf og túlkun, tímagjald | | 10.134 | | b. | Fyrirlestur, af fyrirlestraskrá | | 19.821 | | c. | Fyrirlestur, sérstaklega undirbúinn | | 39.644 | | d. | Rannsókn, greining og þýðing, tímagjald | | 5.067 |
Lágmarksgjald vegna túlkunar er sem nemur einni klukkustund. Innheimta skal fyrir hvern byrjaðan hálftíma eftir það. Þegar veita þarf túlkaþjónustu utan reglulegs skrifstofutíma Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra vegna óvæntra eða ófyrirséðra ástæðna eða atvika, skal innheimt tímagjald sem nemur þremur klukkustundum, að lágmarki. Samskiptamiðstöð er heimilt er að veita endurgjaldlausa túlkaþjónustu vegna daglegs lífs og greiða ferðakostnað táknmálstúlks utan Reykjavíkursvæðisins vegna þess, á grundvelli sérstakrar fjárveitingar á fjárlögum ár hvert. Við afgreiðslu beiðna á grundvelli þessarar heimildar skal gætt jafnræðis milli notenda þjónustunnar, með tilliti til þeirrar fjárveitingar sem til ráðstöfunar er á hverjum tíma. 3. gr. Námsefni. Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra er heimilt að selja námsefni og myndbönd sem stofnunin útbýr. Skal söluverð taka mið af raunkostnaði við framleiðslu þess. 4. gr. Gildistaka. Gjaldskrá þessi sem sett er samkvæmt heimild í 6. gr. laga nr. 129 frá 1990 um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, nr. 959 frá 25. nóvember 2009. Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 6. maí 2013. Katrín Jakobsdóttir. Ásta Magnúsdóttir. |