1. gr. Á eftir 4. gr. reglugerðarinnar kemur ný grein, 4. gr. a., er orðast svo: Hafi félag ákveðið að greiða arð í gegnum kerfi verðbréfamiðstöðvar skal allur arður sem félagið greiðir vera greiddur fyrir tilstilli verðbréfamiðstöðvar. 2. gr. 11. gr. reglugerðarinnar breytist svo: Reikningsstofnun er heimilt að stofna reikninga í verðbréfamiðstöð án könnunar persónuskilríkja skv. 10. gr. enda hafi reikningseigandi þegar stofnað reikning í lána- eða fjármálastofnun sem hlotið hefur starfsleyfi á Íslandi eða samsvarandi lögaðila sem hlotið hefur starfsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu og hann er jafnframt löglegur viðtakandi á öllum greiðslum sem verðbréfamiðstöð er rétt að miðla greiðslum til samkvæmt greiðslufyrirmælum sem berast til hennar, sbr. 5. tölul. 9. gr. Leiki grunur á að viðskiptin tengist broti gegn ákvæðum laga nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka er stofnun reiknings samkvæmt þessari grein óheimil. Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Könnun persónuskilríkja.
3. gr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Reikningsstofnun og verðbréfamiðstöð ber að taka við beiðni um eignarskráningu á venjulegum afgreiðslutíma alla virka vikudaga þó ekki á helgidögum, sbr. ákvæði laga um helgidagafrið. 4. gr. 2. málsl. 51. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Tengiliðurinn skal hafa lokið meistaraprófi (mag. jur.) eða embættisprófi (cand. jur.) í lögfræði. 5. gr. 2. mgr. 52. gr. reglugerðarinnar fellur brott. 6. gr. 2. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar orðist svo: Jafnframt því að auglýsa innköllun tvisvar í Lögbirtingablaði ber útgefandi ábyrgð á því að birta auglýsingu um innköllun réttindanna í öðrum fjölmiðlum með áberandi hætti, s.s. í einu eða fleiri dagblöðum sem hafa víðtæka útbreiðslu á Íslandi og öðrum miðlum sem ástæða þykir til að nota svo upplýsingar um innköllun komist til eigenda útgefinna hlutabréfa í félaginu. 7. gr. Reglugerð þessi er sett með heimild í 12. og 17. gr. laga nr. 131/1997 um rafræna eignarskráningu verðbréfa, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 2. mars 2015. F. h. r. Tómas Brynjólfsson. Guðmundur Kári Kárason. |