Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fenginni tillögu bæjarstjórnar Fjallabyggðar eru hér með settar eftirfarandi reglur um umferð í Fjallabyggð: Siglufjörður: Við gatnamót Hlíðarvegar og Hvanneyrarbrautar verður stöðvunarskylda á Hlíðarvegi þar sem ekið er inn á Hvanneyrarbraut. Hraðahindrun verður á Hafnargötu, milli húsa nr. 20 og 22. Hraðahindrun verður á Fossvegi, staðsett við leiksvæði norðan við Fossveg 16. Auglýsing þessi tekur þegar gildi. Með auglýsingu þessari eru numin úr gildi þau ákvæði eldri auglýsinga um umferð í Fjallabyggð (Siglufirði) sem brjóta í bága við auglýsingu þessa. Lögreglustjórinn á Akureyri, 22. maí 2008. Björn Jósef Arnviðarson. |