Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1492/2022

Nr. 1492/2022 19. desember 2022

REGLUR
um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2023.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2023 eru settar skv. 118. gr. nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2023.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2023 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 116 pr. lítra
Egg 591 pr. kg
Kartöflur 148 pr. kg
Rófur 186 pr. kg
Gulrætur 507 pr. kg
Lambakjöt 610 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 204 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 134 pr. kg
Ungnautakjöt 657 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 409 pr. kg
Folaldakjöt 357 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 132 pr. kg
Grísakjöt 531 pr. kg
Annað svínakjöt 251 pr. kg
Kjúklingar 469 pr. kg
Annað fuglakjöt 769 pr. kg
Lax og silungur 831 pr. kg
Annar fiskur 384 pr. kg

 

Reykjavík, 19. desember 2022.

 

Snorri Olsen ríkisskattstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2022