1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu á grundvelli staðalaðferðar í samræmi við 2. kafla, bálk II, í þriðja hluta reglugerðar (ESB) nr. 575/2013, sbr. lög um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Reglurnar gilda einnig um fjármálafyrirtæki sem reikna eiginfjárkröfur fyrir verðbréfaðar stöður í samræmi við 5. kafla, bálk II, í þriðja hluta sömu reglugerðar.
2. gr.
Vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja yfir í þrep útlánagæða.
Fjármálafyrirtæki sem reiknar eiginfjárkröfur vegna útlánaáhættu skal varpa lánshæfiseinkunn frá lánshæfismatsfyrirtæki yfir í þrep útlánagæða samkvæmt ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
Fjármálafyrirtæki sem reiknar eiginfjárkröfur vegna verðbréfunar skal varpa lánshæfiseinkunn frá lánshæfismatsfyrirtæki yfir í þrep útlánagæða samkvæmt ákvæðum reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1801, með síðari breytingum, sbr. 3. gr.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með vísan til 2. gr. gilda eftirtaldar reglugerðir hér á landi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799 frá 7. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja vegna útlánaáhættu í samræmi við 1. og 3. mgr. 136. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1801 frá 11. október 2016, um tæknilega framkvæmdarstaðla að því er varðar vörpun lánshæfiseinkunna lánshæfismatsfyrirtækja vegna verðbréfunar í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 71.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/634 frá 24. apríl 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar lánshæfisþrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 83/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44 frá 2. júlí 2020, bls. 77. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 50 frá 23. júlí 2020, bls. 388-394.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2028 frá 29. nóvember 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar lánshæfisþrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2021 frá 19. mars 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 26 frá 30. mars 2023, bls. 322-328.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/2005 frá 16. nóvember 2021 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1799 að því er varðar vörpunartöflur sem sýna hvernig mat á útlánaáhættu utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja samsvarar lánshæfisþrepunum sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 140/2022 frá 29. apríl 2022 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 61 frá 22. september 2022, bls. 93.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/2365 frá 2. desember 2022 um breytingu á tæknilegum framkvæmdarstöðlum sem mælt er fyrir um í framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/1801 að því er varðar hvernig vörpunartöflur samsvara lánshæfismati utanaðkomandi lánshæfismatsfyrirtækja fyrir verðbréfun í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 156/2023 frá 13. júní 2023.
Með vísan til heimildar í ákvæði til bráðabirgða III í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 57/2015, vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1799, 2016/1801, 2021/2005 og 2022/2365 í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32016R1799, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 275, þann 12. október 2016, bls. 3-18;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32016R1801, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 275, þann 12. október 2016, bls. 27-33;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32021R2005, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 407, þann 17. nóvember 2021, bls. 10-17;
- https://eur-lex.europa.eu/legal-content/EN/ALL/?uri=CELEX:32022R2365, birt í OJ deild L, undirdeild R, nr. 312, þann 5. desember 2022, bls. 101-108.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 27. og 43. tölul. 2. mgr. 117. gr. b laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002, öðlast þegar gildi. Með gildistöku þeirra falla úr gildi reglur nr. 1166/2022 um vörpun lánshæfismats við útreikning á eiginfjárkröfum vegna útlánaáhættu og verðbréfunar.
Seðlabanka Íslands, 4. október 2023.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
|