Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 60/2025

Nr. 60/2025 10. janúar 2025

REGLUR
Sveitarfélagsins Hornafjarðar um akstursþjónustu aldraðra.

Reglur þessar eru settar með vísan til ákvæða X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Stuðnings- og virkniþjónusta velferðarsviðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar sinnir þjónustu við íbúa sveitarfélagsins samkvæmt reglum þessum.

Um málsmeðferð samkvæmt V. kafla í reglum þessum fer samkvæmt XVII. kafla laga um félags­þjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og stjórnsýslulögum nr. 37/1993.

 

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Markmið.

Markmið með akstursþjónustu aldraðra í Sveitarfélagi Hornafjarðar er að gera öldruðum kleift að búa í heimahúsi lengur og stuðla að auknu félagslegu sjálfstæði.

 

II. KAFLI

Umsókn um þjónustu og réttur til þjónustu.

2. gr.

Umsókn og fylgigögn.

Akstursþjónustan er ætluð íbúum sem eru 67 ára og eldri sem hafa lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði, búa í heimahúsi, hafa ekki aðgang að eigin farartæki og eru ófærir um að nota almennings­samgöngur vegna langvarandi hreyfi­hömlunar. Með langvarandi hreyfihömlun er átt við að lágmarki þriggja mánaða hreyfihömlun þar sem talið er að þá sé liðinn það langur tími að ætla megi að kostnaður vegna ferða hafi áhrif á fjárhag viðkomandi.

Umsókn um akstursþjónustu skal berast í gegnum íbúagátt á vefsíðu Sveitarfélagsins Horna­fjarðar. Matsnefnd „Þjónustunnar heim“, sem er á vegum velferðarsviðs Sveitarfélagsins Horna­fjarðar annast afgreiðslu umsóknar um akstursþjónustu aldraðra. Umsækjandi getur veitt öðrum skrif­legt umboð til að sækja um fyrir sína hönd. Umsókn skal metin á grundvelli möguleika umsækjanda til að nýta sér aðra ferðamöguleika.

Umsækjandi skal skila inn gögnum varðandi eftirfarandi atriði til að umsókn verði samþykkt og verða þau að vera uppfyllt á meðan umsækjandi fær akstursþjónustu aldraðra:

  1. Umsækjandi skal eiga lögheimili í Sveitarfélaginu Hornafirði.
  2. Umsækjandi skal vera 67 ára eða eldri.
  3. Umsækjandi skal búa sjálfstætt.
  4. Umsækjandi hefur ekki aðgang að eigin bifreið eða hefur ekki líkamlega heilsu til aksturs.

Í þeim tilvikum þar sem einstaklingar fá eingöngu lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkis­ins, eru félagslega einangraðir og hafa lítið fjölskyldunet, er heimilt að veita akstursþjónustu þó um skemmri en þriggja mánaða hreyfihömlun sé að ræða.

Hafi notandi sem orðinn er 67 ára fengið þjónustu á grundvelli reglna um ferðaþjónustu fatlaðs fólks fyrir þann aldur á hann rétt á þeirri þjónustu áfram á meðan þörf krefur.

Þeir sem hafa fengið styrk til bifreiðakaupa frá Tryggingastofnun ríkisins og þeir sem njóta bensín­styrks skulu alla jafna ekki njóta réttar til akstursþjónustu samkvæmt reglum þessum.

 

3. gr.

Gildistími umsóknar.

Gildistími samþykktrar umsóknar skal taka mið af þörf hvers og eins. Matsnefnd metur umsóknir og hefur heimild til að taka tillit til tímabundinna eða sérstakra aðstæðna sem metnar eru sérstaklega hverju sinni. Niðurstaða umsóknar er kynnt rafrænt inni á mínu svæði á íbúagátt sveitarfélagsins. Kynna skal niðurstöðu umsóknar svo fljótt sem unnt er. Eftir að umsókn hefur verið samþykkt er framkvæmd þjónustunnar í umsjá starfsmanna stuðnings- og virkniþjónustu sveitar­félagsins.

Miða skal við að umsókn sé að jafnaði ekki samþykkt lengur en til eins árs í senn. Stuðnings- og virkniþjónusta skal upplýsa notanda að jafnaði tveimur mánuðum áður en samþykkt umsókn rennur úr gildi.

Notandi skal upplýsa matsnefnd um breytingar á högum sínum. Ef um er að ræða verulegar breyt­ingar á högum umsóknaraðila eftir að umsókn hefur verið samþykkt er matsnefnd heimilt að endurskoða gildistíma samþykkis fyrir akstursþjónustu aldraðra.

Þegar umsækjandi hefur fengið samþykkta umsókn getur hann óskað eftir þjónustu.

 

III. KAFLI

Framkvæmd akstursþjónustunnar.

4. gr.

Þjónustutími.

Akstursþjónusta aldraðra er í boði á eftirtöldum tímum:

Virka daga frá kl. 8.00 til kl. 22.00.
Um helgar frá kl. 10.00 til kl. 22.00.

Akstur á stórhátíðardögum er eins og um helgar að undanskildum aðfanga- og gamlársdegi. Þá daga er akstursþjónusta til kl. 17.00 og aftur frá kl. 20-22. Miðað er við að ferðir hefjist innan þjónustu­tíma.

 

5. gr.

Tilhögun ferða.

Ferð er skilgreind í reglum þessum sem akstur frá einum stað til annars innan þjónustusvæðis. 

Notandi skal vera tilbúinn til brottfarar í anddyri brottfararstaðar á umsömdum tíma. Við sérstakar aðstæður skal veita notanda aðstoð við að komast frá brottfararstað í bílinn. Ekki er beðið á meðan notandi sinnir erindi sínu. Bílstjórum er ekki heimilt að sinna sendiferðum fyrir notanda.

Notanda sem ekið er til læknis er heimilt að hringja eftir akstri til baka að viðtali loknu enda hafi það ekki verið vitað fyrir fram hve viðtalið tæki langan tíma.

Akstursþjónusta aldraðra er sérhæfð þjónusta og þurfa notendur því að vera viðbúnir töfum eða breytingum á áætlun, s.s. vegna færðar og umferðartafa á annatímum.

 

6. gr.

Pantanir/afpantanir.

Notendur panta ferðir símleiðis og tekið er á móti pöntunum alla virka daga frá kl. 8.00–15.30. Ekki er unnt að tryggja að hægt sé að veita þjónustu til einstaklinga nema pantað sé með a.m.k. dags fyrirvara, þó reynt sé að bregðast við pöntunum eins fljótt og auðið er. Notendur skulu gefa upp­lýsingar um fastar ferðir t.d. vegna læknistíma eða þjálfunar, til að þjónustuaðilar geti leitað hag­ræðis við skipulagningu ferða. Afpöntun reglubundinna ferða skal vera með sem lengstum fyrirvara, helst deginum áður en í undantekningartilvikum með tveggja klukkustunda fyrirvara fyrir fyrir­hugaða ferð. Að öðrum kosti telst ferðin með í uppgjöri.

 

7. gr.

Aðrir farþegar/aðstoðarmenn.

Notendum er heimilt að hafa með sér annan farþega sé það tekið fram þegar pantað er og greiðir notandinn þá sama verð fyrir hann.

Geti notandi ekki ferðast einn að mati matsnefndar er hægt að fara fram á að aðstoðarmaður fylgi notanda. Fyrir aðstoðarmann er ekki greitt fargjald.

 

8. gr.

Gjald, fjöldi ferða og þjónustusvæði.

Gjald fyrir akstursþjónustu aldraðra skal miðast við gjaldskrá velferðarsviðs um akstursþjónustu aldraðra sem samþykkt er í bæjarstjórn í janúar ár hvert.

Hámarksfjöldi ferða eru 16 ferðir á mánuði. Heimilt er að veita fleiri ferðir þegar um er að ræða eftirfarandi skilyrði:

  1. Akstur til að sækja læknismeðferð eða endurhæfingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Höfn eða annarri endurhæfingarstofnun innan þjónustusvæðis í allt að þrjá mánuði á ári.
  2. Akstur í félagsstarf aldraðra í Ekrunni.

Þjónustusvæði akstursþjónustunnar er Sveitarfélagið Hornafjörður. Þjónustuveitanda er heimilt að sérsníða þjónustu sem fer fram fjærst þéttbýlinu Höfn.

 

9. gr.

Öryggi.

Ökutæki, ökumenn og aðrir starfsmenn akstursþjónustu aldraðra skulu uppfylla ákvæði gildandi laga og reglugerða um starfsemina.

Ökumaður sem sinnir akstursþjónustu eldri borgara skal hafa ökuréttindi, sótt skyndihjálpar­námskeið og önnur námskeið sem bætt geta öryggi þjónustuþega. Fyrir ráðningu ökumanns skal liggja fyrir sérstakt sakavottorð eða heimild veitt af hans hálfu til öflunar sérstaks sakavottorðs og upplýsinga úr sakaskrá.

Óheimilt er að ráða starfsmann til aksturs eða annarrar þjónustu fyrir eldri borgara sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. eða XXIII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

 

IV. KAFLI

Önnur ákvæði.

10. gr.

Akstur í dagdvöl fyrir aldraða.

Um akstur í dagdvöl fyrir aldraða fer samkvæmt 13. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra og reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra er kveður á um skyldu rekstraraðila til að annast og bera kostnað af flutningsþjónustu fyrir þá sem dagdvölina sækja til og frá heimili sínu.

 

11. gr.

Akstur fyrir aldraða til og frá stofnunum.

Reglur þessar gilda ekki um akstursþjónustu fyrir aldraða sem eru á stofnunum s.s. hjúkrunar­heimilum og þurfa að leita þjónustu utan stofnunarinnar, s.s. sérfræðilæknishjálpar eða rannsókna- og sjúkraþjálfunar, sbr. ákvæði 14. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999 þar sem fram kemur að slíkum stofnunum beri að tryggja að þar sé veitt hjúkrunar- og læknisþjónusta auk endur­hæfingar.

 

12. gr.

Samráð og úttekt.

Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar kynnir tölfræðilegar upplýsingar og framkvæmd þjónust­unnar árlega fyrir öldungaráði.

 

V. KAFLI

Málsmeðferð.

13. gr.

Könnun á aðstæðum.

Kanna skal aðstæður umsækjanda svo fljótt sem unnt er eftir að umsókn um akstursþjónustu aldraðra hefur borist. Sama á við ef matsnefnd berast upplýsingar um nauðsyn á akstursþjónustu með öðrum hætti.

Matsnefnd skal taka ákvörðun í máli svo fljótt sem unnt er og tryggja að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin.

 

14. gr.

Samvinna við umsækjanda.

Við meðferð umsóknar, öflun gagna og upplýsinga sem og ákvarðanatöku skal leitast við að hafa samvinnu og samráð við umsækjanda eftir því sem unnt er en að öðrum kosti við umboðsmann hans ef við á. Umboðsmaður skal framvísa skriflegu umboði.

 

15. gr.

Varðveisla gagna, trúnaður og aðgangur að gögnum.

Málsgögn er varða persónulega hagi einstaklinga skulu varðveitt með tryggilegum hætti. Hafi starfs­menn kynnst einkahögum umsækjanda eða annarra í starfi sínu, er leynt eiga að fara sam­kvæmt lögum eða eðli máls, er þeim óheimilt að fjalla um þau mál.

Umsækjandi á rétt á að kynna sér upplýsingar úr skráðum gögnum sem varða mál hans að svo miklu leyti sem það stangast ekki á við trúnað gagnvart öðrum.

Ökumenn og aðrir starfsmenn akstursþjónustu eldri borgara skulu skrifa undir yfirlýsingu um trúnað. Trúnaðarskylda helst þó að látið sé af starfi.

 

16. gr.

Leiðbeiningar til umsækjanda.

Við afgreiðslu umsóknar skal starfsmaður bjóða umsækjanda ráðgjöf ef þörf er á og veita upp­lýsingar og leiðbeiningar um réttindi sem hann kann að eiga annars staðar. Þá skal matsnefnd einnig upplýsa umsækjanda um þær skyldur sem kunna að hvíla á honum vegna umsóknar um aksturs­þjónustu aldraðra.

 

17. gr.

Heimildir til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.

Starfsmenn stuðnings- og virkniþjónustu taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði velferðar­nefndar Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Ábendingum notenda varðandi þjónustuna skal beina til stjórnanda stuðnings- og virkniþjónustu.

Velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar hefur heimild til að veita undanþágu frá reglum þessum ef sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir og notandi fer fram á það með sérstakri beiðni til velferðarsviðs innan fjögurra vikna frá því notanda barst vitneskja um ákvörðun. Velferðarnefnd skal fjalla um umsóknina og taka ákvörðun svo fljótt sem unnt er.

 

18. gr.

Kynning á ákvörðun um akstursþjónustu aldraðra.

Kynna skal niðurstöðu umsóknar um akstursþjónustu aldraðra fyrir umsækjanda rafrænt á íbúa­gátt sveitarfélagsins svo fljótt sem unnt er. Sé umsókn hafnað í heild eða að hluta skal notandi fá svar þar sem ákvörðun er rökstudd með skýrum hætti með vísan til viðeigandi ákvæða reglna þessara og/eða annarra reglna eða laga, eftir því sem við á. Þar skal umsækjanda jafnframt kynntur réttur hans til að fara fram á að velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar fjalli um ákvörðunina. Umsækjandi hefur fjögurra vikna frest til að vísa máli sínu til velferðarnefndar frá því að honum barst vitneskja um ákvörðunina.

Taki velferðarnefnd mál til umfjöllunar skal niðurstaða hennar kynnt umsækjanda á íbúagátt sveitar­félagsins og um leið skal honum kynntur réttur hans til málskots til úrskurðarnefndar velferð­ar­­mála, Katrínartúni 2, 105 Reykjavík.

 

19. gr.

Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála – áfrýjun.

Umsækjandi getur skotið ákvörðun velferðarnefndar Sveitarfélagsins Hornafjarðar til úrskurðar­nefndar velferðarmála. Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að tilkynning barst um ákvörðunina. Kæra telst fram komin innan kærufrests ef bréf sem hefur hana að geyma hefur borist úrskurðar­nefndinni eða verið afhent póstþjónustu áður en fresturinn er liðinn.

 

20. gr.

Endurupptaka.

Eftir að ákvörðun hefur verið tilkynnt aðila máls á hann rétt á því að mál hans sé tekið til meðferðar á ný, innan þriggja mánaða frá því að ákvörðun var kynnt, ef ákvörðun hefur byggst á ófull­nægjandi eða röngum upplýsingum, eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

 

21. gr.

Gildistaka.

Reglur þessar gilda frá 1. janúar 2025.

Samþykkt í bæjarráði Sveitarfélagsins Hornafjarðar 7. janúar 2025.

Samþykkt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar 9. janúar 2025.

 

Hornafirði, 10. janúar 2025.

 

Sigurjón Andrésson bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2025