1. gr.
Gildissvið.
Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
2. gr.
Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.
Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.
3. gr.
Innleiðing reglugerða.
Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2574 frá 20. nóvember 2023 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 30. september 2023 til 30. desember 2023 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 24/2024 frá 2. febrúar 2024.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/456 frá 7. febrúar 2024 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. desember 2023 til 30. mars 2024 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga, sem tekin var upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 69/2024 frá 15. mars 2024.
Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union):
- Stjtíð. ESB, deild L, 2023/2574, hinn 21. nóvember 2023.
- Stjtíð. ESB, deild L, 2024/456, hinn 8. febrúar 2024.
4. gr.
Gildistaka.
Reglur þessar, sem settar eru með heimild í 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi, öðlast þegar gildi.
Seðlabanka Íslands, 28. maí 2024.
|
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. |
Rannveig Júníusdóttir framkvæmdastjóri. |
|