1. gr. 2. gr. orðast svo: Framlag í ríkissjóð, sbr. 34. gr. laga nr. 36/2001, skal reikna af hagnaði ársins samkvæmt rekstrarreikningi Seðlabanka Íslands og félaga í eigu bankans, (samstæðureiknings) að frádregnum óinnleystum reiknuðum tekjum og gjöldum. Óinnleystar reiknaðar tekjur í þessu sambandi eru reiknaðar tekjur og gjöld vegna breytinga á gengi íslensku krónunnar og óinnleystar reiknaðar tekjur og gjöld vegna matsbreytinga á verðbréfum í gjaldeyrisforða og gulli. 2. gr. Reglur þessar, sem settar eru á grundvelli 32. gr. laga um Seðlabanka Íslands, nr. 36/2001, öðlast þegar gildi. Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 12. mars 2013. Katrín Júlíusdóttir. Guðmundur Árnason. |