1. gr.
Eftirfarandi breytingar eru gerðar á 2. gr. reglugerðarinnar:
Í stað orðanna „framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2013/625 um vöktun og skýrslugjöf varðandi þol gegn sýkingalyfjum hjá bakteríum, sem valda sjúkdómi sem berst milli manna og dýra, og hjá gistilífsbakteríum. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2013/652/ESB er birt í viðauka við reglugerð þessa“ kemur:
framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1729 um vöktun og skýrslugjöf varðandi þol gegn sýkingalyfjum hjá bakteríum, sem valda sjúkdómi sem berst milli manna og dýra, og hjá gistilífsbakteríum og um niðurfellingu á framkvæmdarákvörðun 2013/652/ESB.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1729 var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 189/2021, frá 9. júlí 2021. Framkvæmdarákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8, frá 10. febrúar 2022, bls. 120.
Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 17. febrúar 2022.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.
|