1. gr.
Gjald fyrir útselda vinnu sérfræðings.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir rannsóknir og ráðgjöf sem falla undir 4. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hverja klukkustund skal vera eftirfarandi án vsk:
a. |
Fyrir sérfræðinga I |
kr. 20.800 |
b. |
Fyrir sérfræðinga II |
kr. 18.600 |
c. |
Fyrir sérfræðinga III |
kr. 16.400 |
2. gr.
Skordýra- og sveppagreiningar.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir greiningu á skordýrum og myglusveppum samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjaldið skal vera kr. 4.100 fyrir skordýragreiningu til almennings.
Fyrir greiningu á myglusveppum í mannvirkjum skal innheimta tímagjald skv. 1. gr. gjaldskrárinnar.
3. gr.
Útgáfa rita.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald fyrir útgáfu rita samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992. Gjald fyrir hvert rit skal vera eftirfarandi án vsk.:
a. |
Fyrir fjölrit Náttúrufræðistofnunar |
kr. 1.700 |
b. |
Fyrir Blika |
kr. 2.000 |
4. gr.
Útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi fyrir rannsóknarsýni samkvæmt. 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjaldið skal vera kr. 58.500.
5. gr.
Útflutningsleyfi fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr.
Náttúrufræðistofnun Íslands innheimtir gjald vegna útgáfu á útflutningsleyfi til almennings fyrir minjagripi og uppstoppuð dýr samkvæmt 5. gr. laga nr. 60/1992.
Gjaldið skal vera kr. 8.400.
6. gr.
Lagastoð og gildistaka.
Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt heimild í 5. gr. laga nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
Gjaldskráin öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá nr. 178/2023 fyrir þjónustu Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, 20. febrúar 2024.
F. h. r.
Stefán Guðmundsson.
Magnús Guðmundsson.
|