1. gr.
Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi liður:
- Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/2120 frá 2. desember 2016 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1033/2006 að því er varðar þau ákvæði sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 64/2017 frá 18. mars 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 31/2017 frá 18. maí 2017, bls. 112.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a, 5. mgr. 75. gr. og 76. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2017.
F. h. r.
Sigurbergur Björnsson.
Gunnar Örn Indriðason.
|