1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað „300.000.000 kr.“ í 1. mgr. kemur: 600.000.000 kr.
- Í stað „450.000.000 kr.“ í 2. mgr. kemur: 900.000.000 kr.
- Í stað „450.000.000 kr.“ í 3. mgr. kemur: 900.000.000 kr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 9. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna „vefsvæði sínu“ kemur: miðlægu vefsvæði um ríkisaðstoð.
- Í stað „60.000.000 kr.“ kemur: 500.000 evrur.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 16. gr. laga nr. 152/2009, um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, og öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 9. apríl 2019.
F. h. r.
Helga Jónsdóttir.
Steinar Örn Steinarsson.
|