Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1576/2024

Nr. 1576/2024 17. desember 2024

GJALDSKRÁ
Geislavarna ríkisins.

1. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna lögbundins eftirlits með geislatækjum og geisla­virkum efnum í samræmi við 5. og 17. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Röntgentæki kr.   
  a) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – myndataka 97.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni 35.000
  b) Röntgentæki til sjúkdómsgreiningar – skyggning 125.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni  46.000
  c) Tölvusneiðmyndatæki og O-bogar 166.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni 97.000
  d) Tannröntgentæki 48.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni  21.000
  e) Tölvusneiðmyndatæki við tannlækningar  
  f) Iðnaðarröntgentæki (opin aðstaða)  
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni  41.500
  g) Dýralækningaröntgentæki 75.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni 24.000
  h) Skermuð öryggisröntgentæki 55.000
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og sem tilheyrir  
    sama ábyrgðarmanni:  
    fimm eða færri tæki 24.000
    fyrir hvert tæki umfram fimm 17.500
  i) Skermuð röntgentæki til efnarannsókna og gæðaeftirlits með iðnaði 48.500
    fyrir hvert tæki til viðbótar á sama vinnustað og með sama ábyrgðarmann 17.500
       
2. Geislalækningatæki, línuhraðlar og hringhraðlar 126.500 
  Fyrir hvert tæki til viðbótar á sömu deild 43.000 
     
3. Geislavirk efni, opnar geislalindir  
  a) Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi  139.500
  b) Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 95.000
  c) Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 60.500
     
4. Geislavirk efni, lokaðar geislalindir  
  a) Nifteindalindir eða hágeislavirkar lindir (sbr. viðauka 1 í reglugerð  
    nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar) 75.000
    i)     fyrir hverja nifteindalind/hágeislavirka lind til viðbótar hjá sama aðila 30.500
  b) Kvörðunarlindir, allt að tíu á sama vinnustað og sem  
    tilheyra sama ábyrgðarmanni 70.500
    i) fyrir hverja kvörðunarlind umfram tíu lindir 7.000
  c) Aðrar lokaðar geislalindir 70.500
    fyrir hverja eins lind til viðbótar:  
    i) fimm eða færri til viðbótar á sama stað með sama ábyrgðarmann 21.000
    ii) fyrir hverja lind umfram fimm á sama stað með sama ábyrgðarmann 17.500
     
5. Eftirlit með geislaálagi starfsfólks  
  a) Almennar geislaálagsmælingar (TLD) fyrir hvert mælitímabil 3.700
  b) Sérhæfðar geislaálagsmælingar, nifteindageislun, fyrir hvert mælitímabil 12.000
  c) Aðrar sérhæfðar geislaálagsmælingar 7.500
  d)  Viðbótargjald fyrir hvern geislaálagsmæli sem týnist eða skemmist  10.500

Heimilt er að lækka eftirlitsgjald um 50% þegar ekki þarf að fara á staðinn heldur nægir að fara yfir gögn og mælingar. Það á við um staði þar sem ekki voru gerðar athugasemdir við síðasta eftirlit og starfsemin er óbreytt.

 

2. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald vegna mats á umsóknum um leyfi í samræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir. Gjaldið skal vera sem hér segir:

1. Vegna geislatækja í læknisfræði kr.   
  a) Tannröntgentæki 16.000
  b) Röntgentæki til dýralækninga 24.000
  c) Röntgentæki til sjúkdómsgreininga 24.000
  d) Geislalækningatæki og línuhraðlar 40.000
       
2. Vegna geislatækja í iðnaði og við öryggisgæslu  
  a) Skermuð röntgentæki 16.000
  b) Háorkuröntgentæki 24.000
       
3. Vegna lokaðra geislalinda  
  a) Innflutningur og/eða geymsla 24.000
  b) Notkun annarra geislalinda en í c-lið 24.000
  c) Notkun nifteindalinda eða hágeislavirkra linda (sbr. viðauka 1 í reglugerð nr. 1298/2015 og ráðleggingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar) 40.500
       
4. Vegna opinna geislalinda  
  a) Rannsóknastofa í flokki C eða sambærileg starfsemi 24.000
  b) Rannsóknastofa í flokki B eða sambærileg starfsemi 32.000
  c) Rannsóknastofa í flokki A eða sambærileg starfsemi 40.000
  d) Framleiðsla geislavirkra efna 322.000
  e) Innflutningur og/eða geymsla 24.000
       
5. Mat á skermun, nýr staður eða breytingar 24.000
     
6. Vegna endurútgáfu leyfa (nýr ábyrgðarmaður eða kennitala leyfishafa)  
  a) Fyrir allt að þrjú tæki/lindir 16.000
  b) Fyrir hvert tæki til viðbótar 4.000
       
7. Vegna notkunar leysa og leysibenda  
  a) Tónleikar og ýmsar sýningar, einn viðburður, almenn afgreiðsla 34.000
  b) Tónleikar og ýmsar sýningar, hraðafgreiðsla (innan fjögurra virkra daga) 68.000
  c) Tónleikar og ýmsar sýningar, fleiri en einn viðburður, almenn afgreiðsla 68.000
  d) Önnur notkun 16.000
       
8. Geislavarnir ríkisins innheimta gjald sem nemur 21.500 kr./klst. vegna mats á umsóknum um leyfi í sam­ræmi við 7. og 9. gr. laga um geislavarnir vegna annars en þess sem talið er upp hér að ofan.  

 

3. gr.

Geislavarnir ríkisins annast innheimtu leyfis- og eftirlitsgjalda. Leyfis- og eftirlitsgjöld falla í gjalddaga við útgáfu reiknings með eindaga 30 dögum síðar.

 

4. gr.

Vegna endurtekinnar eftirfylgni eftirlits vegna þess að ekki er orðið við kröfum um úrbætur innan tiltekins tíma skal innheimt gjald skv. 5. gr. Þurfi Geislavarnir ríkisins að endurtaka eftirlit vegna þess að ekki hefur verið orðið við kröfum um úrbætur sem gerðar voru við reglubundið eftirlit þrátt fyrir endurtekna eftirfylgni skal greiða fyrir það líkt og um reglubundið eftirlit væri að ræða.

Eigandi eða ábyrgðarmaður getur óskað eftir aukaeftirliti og skal þá greiða fyrir það sem um reglubundið eftirlit væri að ræða.

 

5. gr.

Geislavarnir ríkisins innheimta gjald á hverja klukkustund fyrir veitta þjónustu og verkefni sem stofnuninni er falið að annast eða hún tekur að sér samkvæmt lögum og reglugerðum:

      kr.   
  a) Sérfræðingur 25.000
  b) Fulltrúi 19.000

6. gr.

Eftirlits- og leyfisgjöld eru tryggð með lögveðsrétti í eftirlitsskyldum tækjum í tvö ár eftir gjald­daga.

 

7. gr.

Fyrir ýmsar mælingar sem Geislavarnir ríkisins framkvæma skal stofnunin innheimta gjald, að fjárhæð:

      kr.   
  a) Geislun eða geislavirkni 40.000
  b) Rafsegulsvið, útfjólublá geislun og geislun frá leysum, fyrir allt að  
    átta mælingar á sama stað 80.500
  c) Leysibendar, allt að fjórar mælingar 16.000
  d) Leysibendar, hver mæling umfram fjórar mælingar 4.000
  e) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ef farið er á staðinn 50.000
  f) Stroksýni, sem ekki er hluti af eftirliti, ekki farið á staðinn 25.000
  g) Fyrir hvert auka stroksýni 6.000

Fyrir hverja yfirlýsingu um geislavirkni sem stofnunin lætur í té skal innheimta 6.500 kr.

Ef mælingar á rafsegulsviði eru í vinnuumhverfi, þ.e. á svæði þar sem starfsfólk getur verið að störfum, skal stofnunin meta umfang hverrar mælingar fyrir sig og innheimta tímagjald fyrir veitta þjónustu skv. 5. gr.

 

8. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í 19. og 21. gr. laga um geislavarnir, nr. 44/2002, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá Geislavarna ríkisins nr. 1605/2023.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 17. desember 2024.

 

Willum Þór Þórsson.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 23. desember 2024