1. gr.
Á eftir 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýtt ákvæði, svohljóðandi:
Heimaskrifstofa.
Starf innt af hendi á Íslandi frá vinnuaðstöðu á heimili eða eftir atvikum aðsetri launþega í þágu erlends vinnuveitanda, vegna starfsemi hans erlendis, myndar ekki fasta starfsstöð vinnuveitandans enda séu öll eftirfarandi skilyrði uppfyllt:
|
a) |
Almennur vinnustaður launþegans hjá vinnuveitandanum er erlendis. |
|
b) |
Vinnan er innt af hendi frá vinnuaðstöðu sem launþeginn kemur sér upp á heimili sínu eða aðsetri án atbeina vinnuveitandans. |
|
c) |
Vinnuveitandinn hefur ekki aðgang að eða yfirráð yfir vinnuaðstöðunni. |
|
d) |
Vinnuframlagi launþegans er alfarið komið til skila í gegnum rafræna miðla til afnota í atvinnustarfsemi vinnuveitandans erlendis. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 7. mgr. 3. gr. a. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 27. október 2020.
Bjarni Benediktsson.
|