Með vísan til 36. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, hefur mennta- og menningarmálaráðherra hinn 23. júlí 2020 sett úthlutunarreglur Menntasjóðs námsmanna fyrir námsárið 2020-2021 samkvæmt fylgiskjali með auglýsingu þessari. Tillögur að úthlutunarreglum voru samþykktar á fundi stjórnar Menntasjóðs námsmanna hinn 9. júlí 2020.
Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing um staðfestingu úthlutunarreglna Lánasjóðs íslenskra námsmanna fyrir skólaárið 2020-2021, nr. 282/2020.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu, 23. júlí 2020.
Lilja D. Alfreðsdóttir.
Páll Magnússon.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|