1. gr.
Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 852/2023, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2023/2024, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:
Húnabyggð (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda í byggðarlagi og/eða á Skagaströnd, niðurfelling vinnsluskyldu).
Ákvæði reglugerðar nr. 852/2023 gilda um úthlutun byggðakvóta Blönduóss með eftirfarandi breytingum:
|
a) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipta 100% úthlutaðs byggðakvóta jafnt á milli þeirra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. |
|
b) |
Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu 1. september 2023 til 31. ágúst 2024 í Blöndóshöfn og/eða í Skagastrandarhöfn. |
|
c) |
Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður. |
|
d) |
Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu. |
2. gr.
Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 22. maí 2024.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|