Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1193/2018

Nr. 1193/2018 7. desember 2018

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „30“ í lok 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglnanna kemur: 40.

2. gr.

Í stað tölunnar „50“ í lok 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: 54.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. 1. mgr. breytist og orðast svo:
    Fjöldi nýrra nemanda í ljósmóðurfræði til starfsréttinda takmarkast við töluna 12.
  2. 2. mgr. breytist og orðast svo:
    Við inntöku í meistaranám í ljósmóðurfræði til starfsréttinda er tekið mið af:
    1. Einkunnum.
    2. Annarri menntun og/eða starfsreynslu.
    3. Frammistöðu í viðtali.
  3. Á eftir 2. mgr. bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
    Námsnefnd í ljósmóðurfræði fjallar um umsóknirnar og tekur ákvörðun um val stúdenta.
  4. 2. málsl. núverandi 3. mgr. orðast svo: Um framkvæmd fjöldatakmörkunar í grunnnámi í hjúkrunarfræði gilda reglur um samkeppnispróf, sem aðgengilegar eru á vef hjúkrunarfræði­deildar.

4. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum félags­vísinda­sviðs og heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi og verður beitt frá og með háskóla­árinu 2019–2020.

Háskóla Íslands, 7. desember 2018.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2018