Veiðigjald á landaðan afla frá og með 1. janúar til 31. desember 2022 nemur í krónum á hvert kílógramm óslægðs afla þeim fjárhæðum sem hér segir:
Hlýri |
10,04 |
Humar |
30,63 |
Karfi/gullkarfi |
9,59 |
Kolmunni |
2,15 |
Langa |
7,19 |
Langlúra |
19,39 |
Makríll |
5,27 |
Rækja/djúprækja |
6,58 |
Síld |
4,76 |
Skarkoli |
29,21 |
Skötuselur |
22,84 |
Sólkoli/þykkvalúra |
31,32 |
Steinbítur |
14,80 |
Ufsi |
8,82 |
Ýsa |
17,11 |
Þorskur |
17,74 |
Veiðigjald fyrir hvern hval er sem hér segir: i) langreyður 59.442 kr., ii) hrefna 9.511 kr. Veiðigjald á sjávargróður er sem hér segir: 594 kr. á hvert landað tonn klóþangs, hrossaþara og stórþara (blautvigt).
Auglýsing þessi, sem sett er að fenginni tillögu embættis ríkisskattstjóra skv. 4. gr. laga um veiðigjald nr. 145/2018, sbr. einnig 8. gr. sömu laga, öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. nóvember 2021.
Svandís Svavarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
|