Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 491/2020

Nr. 491/2020 25. maí 2020

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1583 frá 25. september 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að fram­fylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd að því er varðar ráðstafanir vegna öryggis á netinu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 202.

 

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 31. desember 2020.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. maí 2020.

 

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.


B deild - Útgáfud.: 27. maí 2020