1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
- Á eftir 1. málslið 2. mgr. bætist við nýr málsliður, svohljóðandi: Lágmarksárangur á inntökuprófi miðast við 185 stig.
- Í stað orðanna „síðasta próf sem umsækjandi tók“ í lok 2. málsliðar 4. mgr. kemur: það próf sem gaf besta niðurstöðu.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum heilbrigðisvísindasviðs, eru settar samkvæmt heimild í 3. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 11. mgr. 98. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 2. mars 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
|