Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 631/2016

Nr. 631/2016 11. júlí 2016

AUGLÝSING
um stöðvun strandveiða á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps.

1. gr.

Frá og með 13. júlí til og með 31. júlí 2016 eru strandveiðar bannaðar á svæði A, frá Eyja- og Miklaholtshreppi til Súðavíkurhrepps, sbr. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 337/2016, um strandveiðar fiskveiðiárið 2015/2016.

2. gr.

Auglýsing þessi er gefin út með stoð í 2. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, sbr. a. lið 2. gr. laga nr. 82/2013, um breytingu á þeim lögum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Fiskistofu, 11. júlí 2016.

Þorsteinn Hilmarsson sviðsstjóri.

Gunnar Hallgrímur Sigurðsson.


B deild - Útgáfud.: 11. júlí 2016