1. gr.
Í stað „779.458 kr.“ í 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 823.108 kr.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 1. mgr. 7. gr. laga nr. 152/2006, um ættleiðingarstyrki, öðlast gildi frá og með 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur brott reglugerð nr. 1656/2021, um breytingu á reglugerð nr. 950/2007, um ættleiðingarstyrki.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
|