1. gr.
Á eftir 1. málsl. 10. mgr. 91. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Einkunn í hverri námsgrein reiknast sem vegið meðaltal verkefna og prófa í viðkomandi námsgrein, en stúdent skal þó ná einkunninni 6,0 í lokaprófi námsgreinarinnar.
2. gr.
2. málsl. 2. mgr. 48. gr. reglnanna fellur brott.
3. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. janúar 2025.
Jón Atli Benediktsson.
|