1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 236/2024 um (8.) breytingu á reglugerð nr. 454/2022 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2235 frá 16. desember 2020 um reglur um beitingu reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/429 og (ESB) 2017/625 að því er varðar fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum, fyrirmyndir að opinberum vottorðum og fyrirmyndir að dýraheilbrigðisvottorðum/opinberum vottorðum vegna komu inn í Sambandið og tilflutninga innan Sambandsins á sendingum af tilteknum flokkum dýra og vara og opinbera vottun að því er varðar slík vottorð og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 599/2004, framkvæmdarreglugerðum (ESB) nr. 636/2014 og (ESB) 2019/628, tilskipun 98/68/EB og ákvörðunum 2000/572/EB, 2003/572/EB og 2007/240/EB, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/399 frá 29. janúar 2024 um breytingu á III. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2020/2235 og II. viðauka við framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/403 að því er varðar fyrirmyndir að vottorðum vegna komu sendinga af tilteknum afurðum úr dýraríkinu og tilteknum flokkum dýra inn í Sambandið. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjal með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Matvælaráðuneytinu, 21. febrúar 2024.
Katrín Jakobsdóttir.
|