Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 645/2022

Nr. 645/2022 27. maí 2022

AUGLÝSING
um (4.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 995/2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fisk­veiðiárinu 2021/2022, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélögum:

 

Húnaþing vestra (breyting á viðmiðun um úthlutun, löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnsluskyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 995/2021, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2021/2022, gilda um úthlutun byggðakvóta Hvammstanga með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður:

 

 

Skipting þess aflamarks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðar­lagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir sam­kvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt samkvæmt stafliðum a, b og c af því afla­marki sem fallið hefur til viðkom­andi byggðarlags.

    a. 65% skal skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga og fengið hafa úthlutun samkvæmt reglugerð nr. 919/2021 vegna aflabrests á rækju í innanverðum Húnaflóa. Við skiptingu þessa 65% byggðakvóta Húnaþings vestra, til ofangreindra skipa, skal miða við meðaltal landaðs botnfiskafla í þorskígildum talið, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, í Hvammstangahöfn á tímabilinu 1. september 2020 til 31. ágúst 2021.
    b. 35% skal skipt milli þeirra fiskiskipa sem gerð eru út frá Hvammstanga miðað við meðaltal landaðs botnfiskafla, í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, í Hvamms-tangahöfn á tímabilinu 1. september 2020 til 31. ágúst 2021.
    c. Skip eiga rétt til úthlutunar úr báðum pottum samkvæmt stafliðum a og b að uppfylltum skilyrðum.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðarlagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
  c) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  d) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. maí 2022.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 1. júní 2022