Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 504/2023

Nr. 504/2023 24. maí 2023

AUGLÝSING
um (4.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1370/2022, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023, staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftir­farandi sveitarfélagi:

 

Árneshreppur (löndunarskylda innan byggðarlags, niðurfelling vinnslu­skyldu).

Ákvæði reglugerðar nr. 1370/2022 gilda um úthlutun byggðakvóta Norðurfjarðar með eftirfarandi breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa innan byggðar­lagsins þeim afla sem telja á til byggðakvóta á tímabilinu frá 1. sept­ember 2022 til 31. ágúst 2023.
  b) Ákvæði 4. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar fellur niður.
  c) Í 3. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist „telst ekki hafa verið landað til vinnslu“ og verður: telst hafa verið landað til vinnslu.

 

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 24. maí 2023.

 

Svandís Svavarsdóttir.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 26. maí 2023