1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. reglnanna:
- Í stað orðsins „fimm“ í 1. málslið 1. mgr. kemur: sex.
- 4. málsliður 1. mgr. breytist og orðast svo: Að auki sitja í ráðinu tveir fulltrúar tilnefndir af stúdentaráði Háskóla Íslands, og skulu þeir ekki vera af sama kyni. Miðað skal við að a.m.k. annar þeirra komi úr hópi þeirra nemenda sem falla undir 1. mgr. 1. gr. reglna þessara.
2. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 13. janúar 2020.
Jón Atli Benediktsson.
|