Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1354/2024

Nr. 1354/2024 21. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1085/2018 um starfrækslu loftbelgja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/357 frá 4. mars 2020 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) 2018/395 að því er varðar flugmannsskírteini fyrir loftbelgi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 115/2023 frá 28. apríl 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 31. ágúst 2023, bls. 818–840.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 83. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 21. nóvember 2024.

 

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Vala Hrönn Viggósdóttir.


B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2024