Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1409/2024

Nr. 1409/2024 29. nóvember 2024

REGLUGERÐ
um (22.) breytingu á reglugerð nr. 41/2012 um gildistöku reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 um setningu reglna um forvarnir gegn, eftirlit með og útrýmingu tiltekinna tegunda smitandi heilahrörnunar.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 66. tölul., svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/887 frá 22. mars 2024 um breytingu á IV., VIII. og IX. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar fóðrun dýra, setningu á markað og innflutning inn í Sambandið. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 230/2024 frá 25. október 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls 417.

Reglugerðin skal gilda með þeim takmörkunum sem leiða af I. kafla I. viðauka við EES-samn­inginn.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um matvæli, nr. 93/1995, og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.

 

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 3. desember 2024