1. gr.
3. málsl. 2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar fellur brott.
2. gr.
1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:
Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 33.388 tonn af loðnu í fiskveiðilandhelgi Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands norðan 64°30´N.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. janúar 2021.
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.
|