1. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 143.963 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.
2. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 87.062 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 199.522 kr. á mánuði.
3. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 152.025 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
4. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2023 til og með 31. desember 2023:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 91.937 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 210.695 kr. á mánuði.
5. gr.
Fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2024 eða síðar:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 600.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 160.538 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna skal nema 222.494 kr. á mánuði.
6. gr.
Fjárhæðir fæðingarstyrks samkvæmt lögum nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, skulu vera sem hér segir til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur frá og með 1. janúar 2024 eða síðar:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 97.085 kr. á mánuði.
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna skal nema 222.494 kr. á mánuði.
7. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 54. gr. laga nr. 144/2020, um fæðingar- og foreldraorlof, öðlast gildi 1. janúar 2024. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1510/2022 um fjárhæðir greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 21. desember 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
|