1. gr.
Með vísan til 13. gr. laga um leikskóla, nr. 90/2008, með áorðnum breytingum, staðfestir mennta- og barnamálaráðherra hér með breytingar á aðalnámskrá leikskóla sem miða að því að skýra nánar hlutverk leiksins sem námsleið leikskólans og hvernig meta megi viðhorf, líðan og stöðu barna með virkum og reglubundnum hætti.
Breytingar voru gerðar á 7.-10. kafla sem birtar eru sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi öðlast gildi 1. september 2023.
Mennta- og barnamálaráðuneytinu, 17. ágúst 2023.
Ásmundur Einar Daðason.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|