Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 683/2024

Nr. 683/2024 17. maí 2024

REGLUGERÐ
um (15.) breytingu á reglugerð nr. 674/2017 um heilbrigðisreglur að því er varðar aukaafurðir úr dýrum og afleiddar afurðir sem ekki eru ætlaðar til manneldis.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist einn nýr töluliður svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1605 frá 22. maí 2023 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1069/2009 að því er varðar ákvörðun á enda­punktum í framleiðsluferli tiltekins lífræns áburðar og tiltekinna jarðvegsbæta. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 50/2024, frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambands­ins nr. 34, frá 25. apríl 2024, bls. 675.

 

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í sam­ræmi við 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 13. og 29. gr. a laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 17. maí 2024.

 

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.


B deild - Útgáfud.: 7. júní 2024