Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1563/2024

Nr. 1563/2024 9. desember 2024

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „20“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglnanna kemur: 25.

 

2. gr.

Í stað tölunnar „35“ í 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: 40.

 

3. gr.

Eftirtaldar breytingar verða á 5. gr. reglnanna:

  1. Í stað tölunnar „11“ í 1. málsl. 7. mgr. kemur: 20.
  2. Í stað tölunnar „11“ í 1. málsl. 8. mgr. kemur: 20.
  3. Á eftir 12. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Fjöldi nýrra nemenda í MS-námi í heilsugæsluhjúkrun, sem skipulagt er í samstarfi við Háskólann á Akureyri, takmarkast við töluna 13.

 

4. gr.

Í stað tölunnar „15“ í 1. mgr. 9. gr. b. reglnanna kemur: 18.

 

5. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræða­sviða, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 9. desember 2024.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 20. desember 2024