Í samræmi við ákvæði III. kafla laga um Samgöngustofu, stjórnsýslustofnun samgöngumála, nr. 119/2012, með síðari breytingum, staðfesti ráðuneytið þann 2. mars 2020 gjaldskrá Samgöngustofu sem birt er sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Gjaldskráin tekur gildi við birtingu og fellur þá úr gildi gjaldskrá Samgöngustofu, nr. 338/2015, með síðari breytingum.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 2. mars 2020.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|