Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1530/2024

Nr. 1530/2024 21. nóvember 2024

GJALDSKRÁ
Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar.

Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar er byggð á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004, og reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 401/2005.

 

1. gr.

Vatnsgjald.

Hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og skal það vera eftirfarandi:

  1. Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 5.972 kr. pr. íbúð og 219 kr. pr. fermetra húss.
  2. Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 18.283 kr. pr. eign og 242 kr. pr. fermetra húss.
  3. Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum.
  4. Álagning skv. a-, b- og c-lið skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægri en 0,1% af fasteignamati allra húsa og lóða.

 

2. gr.

Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatns­gjaldið með fasteignasköttum.

 

3. gr.

Aukavatnsgjald.

Auk vatnsgjalds, skulu fyrirtæki og aðrir, er nota vatn til annars en heimilisþarfa, greiða auka­vatnsgjald sem hér segir:

Aukavatnsgjald Kr./m³
fyrstu 100.000 m³ 38
100.000-250.000 m³ 34
eftir 250.000 m³ 31

Aukavatnsgjald skal innheimta samkvæmt mæli sem Vatnsveita Dalvíkurbyggðar leggur til.

Önnur gjöld:

   a. Lokunargjald kr. 25.000
   b. Útkall kr. 20.423

Skráður notandi:

  1. er ábyrgur fyrir notkun og greiðslum,
  2. skal tilkynna notendaskipti,
  3. kostar breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmda hans og greiðir fyrir þær.

Greiða skal fyrir hverja heimlögn sem tengir húsveitu við dreifikerfi Vatnsveitu Dalvíkur­byggðar, umsókn skal greidd og samþykkt áður en til framkvæmda kemur.

Öllum umsóknum um heimlögn skulu fylgja teikningar af nýrri heimlögn og einnig ef um breytingar heimlagna er að ræða.

Greiða skal fyrir útkall vegna tilkynningar notanda um bilun sem reynist vera í búnaði hús­eiganda á dagvinnutíma, á útkall utan dagvinnutíma reiknast 55% álag á útkallsgjald.

 

4. gr.

Mælaleiga.

Greiðendur aukavatnsgjalds skulu á tveggja mánaða fresti greiða mælagjald vegna leigu á vatnsmælum sem hér segir: 

Stærð mælis Mælagjald í kr. á dag
að 32 mm 17
40 mm 17
50 mm 20
80 mm 49
100 mm 88

 

5. gr.

Heimæðargjald.

Þvermál inntaks Inntaksgjald, kr. Yfirlengd, kr./m
25 mm    301.885 14.164
32 mm     436.055 14.164
40 mm     553.454 14.164
50 mm     737.939 14.164
63 mm   1.039.823 14.164
75 mm   1.475.876 14.164
90 mm   2.173.758 14.164

Yfirlengd reiknast af heimtaug sem er lengri en 20 metrar í lóð viðkomandi mannvirkis. Gjald fyrir heim­æðar 110 mm og víðari greiðist samkvæmt reikningi. Heimæðargjald er miðað við vísitölu bygg­ingarkostnaðar (grunnur 2021) október 2024, 121,0 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.

 

6. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds, en notandi, ef hann er annar en eigandi, ber ábyrgð á greiðslu aukavatnsgjalda og leigugjalda. Vatnsgjald og heim­æðar­gjald nýtur aðfararheimildar skv. 9. gr. laga nr. 32/2004. Vatnsgjald og heimæðargjald, ásamt vöxtum og áföllum kostnaði, nýtur lögveðsréttar í fasteign eiganda næstu 2 ár eftir gjald­daga, með forgangsrétti fyrir hvers konar samningsveði og aðfararveði. Aukavatnsgjald og leigu­gjald, ásamt áföllnum kostn­aði og vöxtum, má taka fjárnámi.

 

7. gr.

Gjaldskrá þessi sem samþykkt er af sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar 19. nóvember 2024 er sett með stoð í 10. gr. laga nr. 32/2004 um vatnsveitur sveitarfélaga og 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga.

Gjaldskráin gildir frá og með 1. janúar 2025. Jafnframt fellur brott gjaldskrá Vatns­veitu Dalvíkur­byggðar, nr. 1592/2023.

 

Dalvíkurbyggð, 21. nóvember 2024.

 

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 18. desember 2024