Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1067/2015

Nr. 1067/2015 1. desember 2015

AUGLÝSING
(III) um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta.

1. gr.

Með vísan til 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2015/2016 staðfestir ráðuneytið sérstök skilyrði vegna úthlutunar aflaheimilda í eftirfarandi sveitarfélögum:

Snæfellsbær.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Hellissands, Rifs, Arnar­stapa og Ólafsvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. c-liðar 1. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í sveitarfélaginu 1. júlí 2015.
  b) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í einstök­um sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til við­kom­andi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið innan sveitarfélagsins á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.
  c) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta til vinnslu innan sveitarfélagsins á tíma­bilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

Tálknafjörður.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Tálknafjarðar með eftir­farandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til byggðakvóta í Tálknafjarðarhöfn til vinnslu innan byggðar­­laga í Vestur-Barðastrandarsýslu, á tímabilinu frá 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.

Bolungarvíkurkaupstaður.

Ákvæði reglugerðar nr. 605 frá 3. júlí 2015 gilda um úthlutun byggðakvóta Bolungarvíkur með eftirfarandi viðauka/breytingum:

  a) Ákvæði 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar breytist og verður: Skipting þess afla­marks, sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kann að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skal að öðru leyti fara fram til einstakra fiski­skipa sem upp­fylla skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggða­kvóta í ein­stökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir samkvæmt 2.-3. gr., eftir því sem við á, og skal skipt þannig að 30% byggðakvótans skiptist jafnt milli skipa og 70% skipist hlutfalls­lega til sömu skipa af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðar­lags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorsk­ígildis­stuðla, í þorsk­ígildum talið, á tímabilinu 1. september 2014 til 31. ágúst 2015.

2. gr.

Auglýsing þessi, sem birt er samkvæmt heimild í 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 1. desember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


B deild - Útgáfud.: 1. desember 2015