Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1601/2024

Nr. 1601/2024 13. desember 2024

GJALDSKRÁ
byggingarfulltrúa Fjallabyggðar.

1. gr.

Fyrir yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta og fylgiskjala þeirra, sem gerðir eru vegna nýbygg­inga, viðbygginga og breytinga á eldri byggingum í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta byggingarleyfisgjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Byggingarleyfisgjöld.

Gjöldin miðast við eina yfirferð aðaluppdrátta. Innifalið er byggingarleyfi, útmæling og hæðar­setning, byggingareftirlit, lögbundnar úttektir, fokheldisvottorð og vottorð um lokaúttekt.

Tegund byggingar kr./m³ Athugasemdir
A Íbúðarhúsnæði 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 132.700
B Iðnaðarhúsnæði 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 178.000
C Verslun og þjónusta 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 178.000
D Sérhæfðar byggingar 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 214.500
E Frístundahús 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 107.800
F Aðrar byggingar en tilgreindar í liðum A-E 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 107.800
G Stækkun húsnæðis/viðbyggingar o.þ.h. 122 Gjald þó ekki lægra en kr. 68.900
H Niðurrif húsa 0 Fast gjald kr. 12.500
I Endurnýjun eldra byggingarleyfis 0 Fast gjald kr. 12.500
J Umsýslugjald vegna minni grenndarkynningar 0 Fast gjald kr. 31.500
K Umsýslugjald vegna stærri grenndarkynningar 0 Fast gjald kr. 126.900

 

3. gr.

Meginreglur vegna vinnu við deiliskipulag

Gjaldskráin byggir á þeirri meginreglu að aðili sem óskar eftir heimild til gerðar nýs deili­skipulags eða breytingu á deiliskipulagi skuli greiða þann kostnað sem vinnan hefur í för með sér. Í því felst að umsækjandi greiðir kostnað vegna nýrra uppdrátta, breytinga á uppdráttum, auglýsinga og kynninga vegna málsins. Skipulags- og umhverfisnefnd getur ákveðið að falla frá gjaldtöku ef skipulagsvinna á vegum sveitarfélagsins er yfirstandandi eða fyrirhuguð á svæðinu eða skipulags­áætlun þarfnast breytinga af öðrum ástæðum, enda hafi það ekki í för með sér viðbótarkostnað fyrir sveitarfélagið. Gjaldskráin er gerð með vísun í skipulagslög nr. 123/2010.

Kostnaður vegna deiliskipulags og deiliskipulagsbreytinga: 

Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda
Veruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr.43. gr Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda
Óveruleg breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43. gr. Aðkeypt vinna á vegum umsækjanda
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna nýs deiliskipulags, sbr. 2. mgr. 38. gr. 219.100 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna verulegra breytinga, sbr. 1. mgr. 43. gr. 168.500 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 2. mgr. 43. gr. með grenndarkynningu 95.500 kr.
Umsýslu- og auglýsingakostnaður vegna óverulegra breytinga, sbr. 3. mgr. 44. gr. án grenndarkynningar 61.800 kr.

 

4. gr.

Rúmmetragjald samkvæmt 2. gr. skal reikna af brúttórúmmáli sbr. ákvæði ÍST 50, án svala og C rýma. Rúmmetra skal námunda í heilan rúmmetra samkvæmt almennum reiknireglum.

 

5. gr.

Byggingarfulltrúi annast innheimtu byggingarleyfisgjalda samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

6. gr.

Gjalddagi lágmarksgjalds er við móttöku byggingarleyfisumsóknar. Gjalddagi rúmmetragjalds er fyrir útgáfu byggingarleyfis. Byggingarfulltrúa er óheimil útgáfa byggingarleyfis, eða takmarkaðs byggingarleyfis, fyrr en byggingarleyfisgjald hefur verið greitt.

 

7. gr.

Byggingarleyfisgjald verður ekki endurgreitt falli byggingarleyfishafi frá notkun leyfisins eða það fellur úr gildi.

 

8. gr.

Fyrir þjónustu sem veitt er af hálfu byggingarfulltrúa í umdæmi Fjallabyggðar, skal byggingar­fulltrúinn í Fjallabyggð í umboði bæjarstjórnar innheimta þjónustugjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

9. gr.

Afgreiðslu- og þjónustugjöld.

Fyrir ýmsa þjónustu sem byggingarfulltrúi veitir greiðast eftirfarandi gjöld: 

  Tegund þjónustu: Gjald kr.:
1.  Afgreiðslugjald, fast gjald á aðra liði en um getur í 2. og 8. gr.  
  Gjaldið greiðist fyrir hverja einstaka afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar 3.150
2.  Stöðuleyfi, árgjald sem greiðist einu sinni á ári.  
  a)   Hjólhýsi o.þ.h. 36.300
  b)   Gámar:  
        upp að 20 fet að stærð 36.300
        40 fet að stærð 70.600
3.  Lóðarúthlutunargjald, óendurkræft þó lóðinni sé skilað til sveitarfélagsins 32.200
4.  Eignarskiptalýsingar, hver umfjöllun 12.700
5.  Vottorð vegna vínveitingaleyfa 12.700
6.  Fyrir húsaleiguúttekt 12.700
7.  Fyrir úttekt á verkstöðu vegna lánveitingar 12.700
8.  Útprentun á A2 292
9.  Útprentun á A3 150
10.  Útprentun á A4 90
11.  Nýr lóðarleigusamningur 64.500
12.  Endurnýjun lóðarleigusamnings 25.700
13.  Breytingar á lóðarblaði eða gerð nýs lóðarblaðs 25.700
14.  Endurskoðun aðaluppdráttar 25.700
15.  Minniháttar breytingar á innra skipulagi og útliti húsa 25.700
16.  Framkvæmdaleyfi 90.500
17.  Endurnýjun leyfis án breytinga 19.100

 

10. gr.

Gjaldskrá þessa skal bæjarstjórn taka til endurskoðunar við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert.

 

11. gr.

Gjaldskrá þessi er sett af bæjarstjórn Fjallabyggðar með heimild í 51. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 ásamt 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og gildi 1. janúar 2025.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi, sbr. 3. mgr. 53. gr. laga um mann­virki nr. 160/2010. Frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá byggingarfulltrúa Fjallabyggðar nr. 1541/2023.

Samþykkt í bæjarstjórn Fjallabyggðar 12. desember 2024.

 

Fjallabyggð, 13. desember 2024.

 

Sigríður Ingvarsdóttir bæjarstjóri.


B deild - Útgáfud.: 27. desember 2024