Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem hér segir:
Vestursvæði – Höfðahverfi. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingu á legu göngustígs milli Súluhöfða og golfvallar. Í stað þess að stígurinn tengist einungis inn á gangstétt í neðstu götunni í Súluhöfða fer hann einnig norðvestur fyrir neðstu lóðirnar og tengist inn á núverandi stíg sem liggur til vesturs og niður gegnum golfvöllinn að strandstíg.
Ofangreind breyting hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 mæla fyrir um og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Mosfellsbæjar, 14. október 2019,
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi.
|