1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/248 frá 15. febrúar 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Pregler“/„Osttiroler Pregler“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 102.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/380 frá 28. febrúar 2022 um skráningu landfræðilegrar merkingar fyrir brenndan drykk skv. 2. mgr. 30. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/787 („Homokháti oszibarack pálinka“). Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 152/2023, frá 13. júní 2023. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 63, frá 7. september 2023, bls. 122.
2. gr.
Tollyfirvöld hafa eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við 132. gr. tollalaga nr. 88/2005.
Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar hafa eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, sbr. 29. gr. laga nr. 130/2014 um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu.
3. gr.
Reglugerð þessi er sett með stoð í 40., sbr. 27. gr. laga um vernd afurðarheita sem vísa til uppruna, landsvæðis eða hefðbundinnar sérstöðu nr. 130/2014, með síðari breytingum, og 31. gr. a laga um matvæli nr. 93/1995, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Matvælaráðuneytinu, 14. nóvember 2023.
Svandís Svavarsdóttir.
|