Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 433/2013

Nr. 433/2013 3. maí 2013
REGLUGERÐ
um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Reglugerð þessi tekur til karfaveiða íslenskra skipa í Síldarsmugunni (ICES svæði I+II) austan 22°V og rækjuveiða í Barentshafi (ICES svæði Ia), utan lögsögu ríkja.

2. gr.

Íslenskum fiskiskipum er óheimilt að stunda veiðar skv. 1. gr. án sérstakra leyfa frá Fiskistofu.

3. gr.

Við veiðar skv. 1. gr. skulu fiskiskip búin fjarskiptabúnaði sem sendir upplýsingar með sjálfvirkum hætti til sameiginlegrar eftirlitsstöðvar Landhelgisgæslunnar og Fiskistofu, hér eftir nefnd Eftirlitsstöðin, um staðsetningu skipsins á klukkustundar fresti.

Óheimilt er að halda úr höfn til veiða fyrr en starfsmenn Eftirlitsstöðvarinnar hafa staðfest til skipstjóra að eftirlitsbúnaðurinn starfi eðlilega.

Ef eftirlitsbúnaðurinn bilar, skal gert við hann við komu í næstu höfn. Þar til búnaðinum verður komið í lag, skal senda á annan hátt upplýsingar um staðsetningu skipsins á 6 klukkustunda fresti til Eftirlitsstöðvarinnar.

4. gr.

Um tilkynningar gilda ákvæði reglugerðar nr. 1221/2008, með síðari breytingum, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

5. gr.

Stundi skip veiðar samkvæmt þessari reglugerð og almennar togveiðar í lögsögu Íslands í sömu veiðiferð skal halda afla sem þannig fæst aðgreindum frá öðrum afla um borð í veiðiskipi og skal hann veginn og skráður sérstaklega við löndun. Um vigtun afla fer eftir ákvæðum gildandi reglugerðar um vigtun sjávarafla.

II. KAFLI

Karfaveiðar í Síldarsmugunni (ICES svæði I+II).

6. gr.

Veiðar á karfa (S.Mentella) í Síldarsmugunni (ICES svæði I+II), austan 22°V eru heimilar frá og með 1. júlí til og með 31. desember 2013. Sameiginlegar aflaheimildir aðildarríkja NEAFC fyrir árið 2013 eru 19.500 lestir. Þennan afla skal skrá sem „RED“ í tilkynningar­kerfinu.

Fiskistofa tilkynnir leyfishöfum þegar 80% magnsins er náð en frá og með þeirri tilkynningu er fiskiskipum skylt að senda daglegt aflaskeyti. Þegar sameiginlegar afla­heimildir aðildarríkja NEAFC fyrir árið 2013 eru uppurnar skal Fiskistofa afturkalla öll útgefin veiðileyfi.

Við uppreikning á hausuðum og slægðum karfa í afla upp úr sjó skal miða við stuðulinn 1,70.

7. gr.

Karfasýni skulu tekin úr afla, a.m.k. eitt úr hverri veiðiferð og skal hvert sýni innihalda 50-100 fiska sem valdir eru af handahófi. Skrá skal sýnatöku í afladagbók. Sýnin skulu fryst um borð, vera vandlega merkt stað, dagsetningu og dýpi og send Haf­rannsókna­stofnun að lokinni veiðiferð.

8. gr.

Lágmarksmöskvastærð er 100 mm.

III. KAFLI

Rækjuveiðar í Barentshafi (ICES svæði Ia).

9. gr.

Lágmarksmöskvastærð er 35 mm.

10. gr.

Skylt er við rækjuveiðar á Barentshafi (ICES svæði Ia), utan lögsögu ríkja, að nota seiðaskilju við veiðarnar.

Seiðaskilja skal þannig gerð að bil milli rimla skal mest vera 22 mm. Skiljunni skal komið fyrir í belg vörpunnar með u.þ.b. 45-50 gráðu halla þannig að neðri kantur skiljunnar nái lengra fram. Skiljan skal fylla út í belginn og skulu allir jaðrar hennar festir við netið í belgnum. Á efra byrði vörpunnar fyrir framan skiljuna skal vera gat þar sem fiskur skilst út. Þá aðeins er heimilt að nota yfirpoka á seiðaskilju við rækjuveiðar í Barentshafi (ICES svæði Ia), að hlutaðeigandi skip hafi leyfi skv. reglugerð um stjórn veiða á djúp­sjávar­tegundum á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC).

IV. KAFLI

Ýmis ákvæði.

11. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út á grundvelli hennar, skulu varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum, lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum.

12. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57, 3. júní 1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. maí 2013.

F. h. r.

Ingvi Már Pálsson.

Kristján Freyr Helgason.

B deild - Útgáfud.: 7. maí 2013