1. gr.
Í stað orðanna „frá 1.–15. hvers mánaðar og frá 16. til loka hvers mánaðar“ í 2. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. hvers mánaðar til loka hans.
2. gr.
Í stað orðanna „1. til 15. hvers mánaðar og frá 16. til loka hvers mánaðar“ í 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. hvers mánaðar til loka hans.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 4. mgr. 5. gr. laga nr. 96/1995, um gjald á áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 23. desember 2015.
F. h. r.
Elín Guðjónsdóttir.
Benedikt S. Benediktsson.
|