1. gr.
Við reglugerðina bætist ný grein á eftir 9. gr. sem verður 9. gr. a og orðast svo:
Að fenginni umsókn veitir Lyfjastofnun undanþágu frá ákvæðum þessarar reglugerðar og ákvæðum laga nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna, til innflutnings, meðferðar og vörslu fræja tegundarinnar Cannabis sativa í þeim tilgangi einum að rækta iðnaðarhamp. Undanþágan skal bundin eftirfarandi skilyrðum og takmörkunum:
- Að magn tetrahydrocannabinol (THC) í fræinu sé að hámarki 0,20%, sem og í þeim afurðum sem fræið kann að gefa af sér.
- Að um sé að ræða yrki tegundarinnar Cannabis sativa sem tilgreint er í sameiginlegri EES-skrá yfir yrki nytjaplantna í landbúnaði sem birt er samkvæmt tilskipun 2002/53/EB, sem innleidd er í íslenskan rétt með reglugerð nr. 301/1995, um eftirlit með sáðvöru.
- Að viðkomandi fræjum fylgi gögn sem sýni fram á að um sé að ræða yrki sem sé tilgreint í sameiginlegri EES-skrá og uppfylli skilyrði tilskipunar ráðsins 2002/57/EB, um markaðssetningu olíu- og trefjaplöntufræs, sem innleidd er í íslenskan rétt með reglugerð nr. 301/1995, um eftirlit með sáðvöru.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 3. mgr. 2. gr. laga nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 17. apríl 2020.
Svandís Svavarsdóttir.
|