Með vísan til 36. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, setti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 24. mars 2022 úthlutunarreglur Menntasjóðs námsmanna fyrir námsárið 2022-2023 samkvæmt fylgiskjali með auglýsingu þessari. Tillögur að úthlutunarreglum voru samþykktar á fundi stjórnar Menntasjóðs námsmanna 24. febrúar 2022.
Frá sama tíma fellur úr gildi auglýsing um úthlutunarreglur námsmanna fyrir skólaárið 2021-2022, nr. 360/2021.
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. mars 2022.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|