Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 332/2025

Nr. 332/2025 27. febrúar 2025

REGLUGERÐ
um (57.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftirtalinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar öðlast eftirtaldar ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/246 frá 16. janúar 2024 um breytingu á IV. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar Pythium oligandrum af stofni M1, Trichoderma atroviride af stofni AGR2 og Trichoderma atroviride af stofni AT10. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 263/2024, frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 20. febrúar 2025, bls. 636.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1314 frá 15. maí 2024 um breytingu á III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir díþíanón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264/2024, frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 20. febrúar 2025, bls. 639.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1318 frá 15. maí 2024 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir próþíókónasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264/2024, frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 20. febrúar 2025, bls. 652.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/1355 frá 21. maí 2024 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bensóvindíflúpýr, klórantranilípról, emamektín, kínklórak, spírómesífen og tríflúmúrón í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 265/2024, frá 6. desember 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 10, frá 20. febrúar 2025, bls. 670.

 

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995.

 

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995, um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

 

Matvælaráðuneytinu, 27. febrúar 2025.

 

Hanna Katrín Friðriksson
atvinnuvegaráðherra.

Svava Pétursdóttir.


B deild - Útgáfud.: 28. mars 2025