1. gr.
Þvingunaraðgerðir.
Eftirfarandi töluliðir bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:
5.3 |
Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2024/2894 frá 18. nóvember 2024 um breytingu á ákvörðun (SSUÖ) 2023/1532 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 5.3. |
6.2 |
Reglugerð ráðsins (ESB) 2024/2897 frá 18. nóvember 2024 um breytingu á reglugerð(ESB) 2023/1529 um þvingunaraðgerðir í ljósi hernaðarstuðnings Írans við árásarstríð Rússlands gegn Úkraínu og við vopnaða hópa og rekstrareiningar í Austurlöndum nær og á Rauðahafssvæðinu, sbr. fylgiskjal 6.2. |
2. gr.
Gildistaka o.fl.
Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.
Utanríkisráðuneytinu, 29. janúar 2025.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjöl. (sjá PDF-skjal)
|