Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 5/2021

Nr. 5/2021 11. janúar 2021

REGLUGERÐ
um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

1. gr.

Markmið.

Með vísan til 2. mgr. 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997 hefur heilbrigðisráðherra ákveðið, að feng­inni tillögu sóttvarnalæknis og í samráði við ríkisstjórnina, að setja á tímabundna takmörkun á samkomum eftir því sem nánar greinir í reglugerð þessari.

Markmið takmörkunarinnar er að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins.

 

2. gr.

Gildissvið.

Takmörkun á samkomum tekur gildi 13. janúar 2021 og gildir til og með 17. febrúar 2021.

Stjórnvöld endurmeta þörf á takmörkuninni eftir því sem efni standa til, þ.e. hvort unnt sé að aflétta henni fyrr eða hvort þörf sé á að framlengja gildistíma hennar.

Takmörkun á samkomum tekur til landsins alls.

Reglugerðin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna né til loft­fara, skipa í millilanda­ferðum og skipa sem stunda fiskveiðar.

Reglugerðin tekur ekki til heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og annarra sambærilegra stofn­ana, en þær skulu setja sér reglur um sóttvarnir, sbr. 6. gr.

Ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar þessarar um fjöldatakmörkun, nálægðartakmörkun og grímu­skyldu taka ekki til barna sem fædd eru 2005 eða síðar.

Reglugerð þessi tekur ekki til skólastarfs sem fjallað er um í sérstakri reglugerð um takmörkun skólastarfs.

 

3. gr.

Fjöldatakmörkun.

Í takmörkun á samkomum felst að fjöldasamkomur eru óheimilar á gildistíma þessarar reglu­gerðar. Með fjöldasamkomum er átt við það þegar fleiri en 20 einstaklingar koma saman, hvort sem er í opinberum rýmum eða einkarýmum. Er þá meðal annars vísað til:

  1. Ráðstefna, málþinga, útifunda o.þ.h.
  2. Kennslu, fyrirlestra og prófahalds.
  3. Skemmtana, svo sem tónleika, menningarviðburða, leiksýninga, bíósýninga, íþróttaviðburða og einkasamkvæma, sbr. þó 5. gr.
  4. Kirkjuathafna hvers konar, svo sem vegna giftinga og ferminga, og annarra trúar­samkoma, sbr. þó 4. mgr.
  5. Annarra sambærilegra viðburða með fleiri en 20 einstaklingum.

Enn fremur skal tryggt á öllum vinnustöðum og í allri starfsemi að ekki séu á sama tíma fleiri en 20 einstaklingar inni í sama rými. Tryggja skal að ekki sé samgangur milli rýma.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum heimilt að taka við fimm viðskiptavinum á hverja 10 m², þó að hámarki 100 viðskiptavinum í rými að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr. Þá er heimilt að hafa allt að 20 starfsmenn í sama rými og viðskiptavinir í verslunum að því gefnu að upp­fyllt séu skilyrði 1. mgr. 4. gr.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er allt að 100 einstaklingum heimilt að vera viðstaddir útfarir. Um fjölda fólks við erfidrykkju fer eftir 1. mgr.

Fjöldatakmarkanir 1. og 2. mgr. gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innan­lands­flug, farþegaferjur og störf viðbragðsaðila, svo sem lögreglu, slökkviliðs, hjálparliðs almanna­varna og heilbrigðisstarfsfólks. Enn fremur gildir ákvæðið ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, þjóðar­öryggis­ráðs, Alþingis og þegar dóm­stólar fara með dómsvald sitt.

Fjöldatakmörkun samkvæmt ákvæði þessu á ekki við um heimilisfólk á heimili sínu.

 

4. gr.

Almenn nálægðartakmörkun og grímunotkun.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, meðal annars þeirri sem talin er upp í 3. gr., skal tryggja að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun sem kveðið er á um í 1. mgr., svo sem í heilbrigðisþjónustu, innanlandsflugi og -ferjum, almenningssamgöngum, leigu­bifreiðum og hópbifreiðum, í verklegu ökunámi og flugnámi, auk þess í menningarstarfsemi, starf­semi hárgreiðslustofa, snyrtistofa, nuddstofa, húðflúrstofa, hundasnyrtistofa, sólbaðsstofa og annarri sambærilegri starfsemi. Andlitsgríma skal hylja nef og munn. Andlitsgrímur sem notaðar eru utan heilbrigðisþjónustu skulu uppfylla kröfur sem fram koma í vinnustofusamþykkt evrópsku staðla­samtakanna (CEN). Sóttvarnalæknir getur sett nánari leiðbeiningar um kröfur til andlitsgríma sam­kvæmt ákvæði þessu. Í þjónustu sem krefst snertingar skal gætt að handþvotti og sótthreinsun handa, auk þess skal sótthreinsa snertifleti milli viðskiptavina.

Undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. eru þeir einstaklingar sem fengið hafa COVID-19 og lokið einangrun. Jafnframt eru þeir undanþegnir grímuskyldu skv. 2. mgr. sem hafa ekki skilning eða þroska til að nota andlitsgrímu rétt eða geta það ekki af öðrum ástæðum, svo sem vegna heilsu­fars.

Á þeim stöðum þar sem er grímuskylda skulu einstaklingar skv. 3. mgr. sýna vottorð um undan­þágu frá grímuskyldu, auk skilríkja sé þess krafist.

 

5. gr.

Takmarkanir á starfsemi vegna sérstakrar smithættu.

Skemmtistöðum og krám, sbr. 18. gr. reglugerðar nr. 1277/2016, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, spilakössum og spilasölum skal lokað frá gildistöku reglugerðarinnar. Þá er öðrum veitingastöðum þar sem eru heimilaðar áfengisveitingar heimilt að hafa opið til kl. 22.00, en er þó ekki heimilt að hleypa inn nýjum viðskiptavinum eftir kl. 21.00. Þó er heimilt að selja mat út úr húsi til kl. 23.00. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. er veitingastöðum heimilt að taka við 20 viðskiptavinum í rými.

Í þeim tilvikum þar sem fleiri tegundir veitingastaða eru skráðar í rekstrarleyfi er heimilt að starfa áfram í samræmi við aðrar tegundir en kveðið er á um í 1. mgr. með þeim takmörkunum sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

Ekki er heimilt að veita tímabundið leyfi fyrir skemmtunum, svo sem tónleikum, dansleikjum, brennum eða öðrum viðburðum sem ætla má að dragi að sér hóp fólks eftir kl. 21.00.

Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjöldatakmörkun má gestafjöldi á sund- og baðstöðum aldrei vera meiri en helmingur af leyfilegum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um sund- og baðstaði vegna COVID-19. Ákvæði þetta tekur einnig til baðstaða í náttúrunni eftir því sem við á.

Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna, innan- og utandyra, með og án snertingar, eru heimilar. Þrátt fyrir ákvæði 6. mgr. 2. gr. og 3. gr. er hámarksfjöldi á æfingum og keppnum 50 manns. Búningsaðstaða skal þrifin reglulega og snertifletir sótthreinsaðir milli hópa. Sameiginleg áhöld skulu sótthreinsuð a.m.k. tvisvar á dag, loftræsting skal vera í lagi og loftað reglulega út yfir daginn.

Íþrótta- og ólympíusamband Íslands setur sérsamböndum reglur, svo sem um einstaklings­bundnar sóttvarnir og sótthreinsun búnaðar, um framkvæmd æfinga og keppna í sínum greinum í samvinnu við sóttvarnalækni. Í íþróttum sem ekki tilheyra Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands skal setja leiðbeiningar eða fylgja sömu leiðbeiningum og sambærilegar íþróttir innan sambandsins.

Óheimilt er að hafa áhorfendur á íþróttaviðburðum. Þó er heimilt að hafa fjölmiðlafólk á slíkum viðburðum að uppfylltum ákvæðum 1. mgr. 3. og 4. gr.

Leið 4 í reglum skíðasvæða í COVID-19 faraldri sem gerðar voru af Samtökum skíðasvæða á Íslandi, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og sóttvarnalækni gildir um skíðasvæði.

Heilsu- og líkamsræktarstöðvum er heimilt að hafa opið. Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. um fjölda­takmörkun má gestafjöldi á heilsu- og líkamsræktarstöðvum aldrei vera meiri en helmingur af leyfi­legum hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Sé hámarksfjöldi gesta ekki skráður í starfsleyfi skal miða gestafjölda við helming þess fjölda sem fataskiptirými gerir ráð fyrir. Börn fædd árið 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Eingöngu er heimilt að hafa opið fyrir skipulagða hóptíma þar sem þátttakendur eru skráðir og hafa skal hlé milli tíma svo unnt sé að sótthreinsa búnað og snertifleti. Búnaður skal ekki fara á milli notenda í sama hóptíma og skal sótthreinsaður fyrir og eftir æfingu. Búningsklefar skulu lokaðir. Í hverju rými gildir ákvæði 1. mgr. 3. gr. um fjöldatakmörkun og 1. mgr. 4. gr. um 2 metra nálægðartakmörkun. Sóttvarnalæknir gefur út nánari leiðbeiningar um heilsu- og líkamsræktarstöðvar vegna COVID-19.

Sviðslistir, kórastarf, bíósýningar sem og aðrir menningarviðburðir eru heimilir með allt að 50 manns á sviði, þ.e. æfingar og sýningar. Andlitsgrímur skulu notaðar þegar því verður við komið nema þegar listflutningur fer fram. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun. Gætt skal að hand­hreinsun, sótthreinsun sameiginlegs búnaðar a.m.k. tvisvar á dag og tryggja skal að loft­ræsting sé í lagi. Heimilt er að taka á móti allt að 100 sitjandi gestum í hverju rými að því gefnu að allir gestir sitji í númeruðum sætum sem skráð eru á nafn. Skulu gestir sem fæddir eru 2004 og fyrr bera andlits­grímu nema þegar neytt er drykkjar- eða neysluvöru. Hvorki er heimilt að bjóða upp á hlé né áfengissölu á sýningum. Heimilt er að taka á móti allt að 100 börnum fæddum 2005 og síðar til viðbótar við framangreindan fjölda gesta.

 

6. gr.

Hjúkrunarheimili og aðrar heilbrigðisstofnanir.

Heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og aðrar sambærilegar stofnanir eru almennt undan­þegnar ákvæðum reglugerðarinnar en skulu setja sér reglur um starfsemi sína, svo sem um heim­sóknir utanaðkomandi að heimilunum og stofnununum, nálægðartakmarkanir, hámarksfjölda í rými og hlífðarbúnað.

 

7. gr.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma.

Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrífa eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti. Auk þess skal minna almenning og starfsmenn á einstaklingsbundnar sóttvarnir, svo sem munnlega, með merkingum eða skiltum.

Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, meðal annars við afgreiðslukassa og innkaupakerrur í verslunum.

 

8. gr.

Undanþágur.

Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum til verndar lífi eða heilsu manna eða dýra eða vegna samfélagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast, svo sem á sviði raforku, fjarskipta, samgangna, sorphirðu, heil­brigðis­starfsemi, félagsþjónustu, löggæslu, sjúkra­flutninga, hjálparliðs almannavarna eða slökkvi­liða.

Hið sama á við vegna kerfislega og efnahagslega mikilvægrar starfsemi, svo sem til að tryggja fæðuöryggi, dreifingu nauðsynjavara eða efnahagslegt öryggi ríkisins með útflutningi. Enn fremur getur ráðherra veitt undanþágu vegna starfa Alþingis, dómstóla og stjórnsýslu.

Þá getur ráðherra veitt undanþágu frá takmörkunum á íþróttastarfi þegar sérstaklega stendur á, enda sé gætt fyllstu sóttvarnaráðstafana að öðru leyti. 

Við veitingu undanþága skal leitast við að grípa til annarra aðgerða þannig að gætt sé að smit­vörnum eins og kostur er.

Ráðherra getur óskað eftir umsögnum frá sóttvarna­lækni um beiðnir um undanþágu.

 

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, tekur gildi eftir því sem mælt er fyrir um í 2. gr. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 1223/2020, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar.

 

Heilbrigðisráðuneytinu, 11. janúar 2021.

 

F. h. r.

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2021