Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1701/2023

Nr. 1701/2023 14. desember 2023

GJALDSKRÁ
fyrir heilbrigðis-, mengunarvarna- og matvælaeftirlit á Vestfjarðasvæði.

1. gr.

Af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Vestfjarðasvæðis, samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum nr. 6/2002 um tóbaksvarnir og lögum nr. 93/1995 um matvæli og reglugerðum settum með stoð í þeim, er aðildar­sveitarfélögum heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.

 

2. gr.

Tímagjald fyrir þjónustu er kr. 19.696. Gjald vegna rannsóknar pr. sýni skv. eftirlitsáætlun er kr. 41.000.

 

3. gr.

Af starfsleyfisskyldri starfsemi, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjald fyrir starfs­leyfi sem hér segir:

Endurnýjun starfsleyfis: Starfsleyfisgjald að lágmarki eitt og hálft tímagjald og auglýsinga­kostnaður ef við á.

Ný starfsemi: Starfsleyfisgjald tvö tímagjöld og eftirlitsgjald viðkomandi fyrirtækjaflokks ásamt auglýsingakostnaði ef við á.

Önnur starfsleyfi sem ekki eru í eftirlitsáætlun: Starfsleyfisgjald tvö tíma­gjöld og gjald skv. reikningi vegna undirbúnings, ferðar, úttektar og frágangs ásamt auglýs­inga­kostnaði ef við á.

 

4. gr.

Af starfsemi sem telst skráningarskyld skv. reglugerð nr. 830/2022, er aðildarsveitarfélögum heimilt að innheimta gjald fyrir meðferð og staðfestingu skráningar, sem nemur einu tímagjaldi og eftirlitsgjaldi viðkomandi fyrirtækjaflokks.

 

5. gr.

Gjald skv. 3. gr. greiðist við afhendingu leyfisbréfs og reiknast dráttarvextir 30 dögum eftir útgáfudag leyfis. Gjald skv. 4. gr. er innheimt við móttöku skráningargagna og reiknast dráttar­vextir 30 dögum eftir gjalddaga.

 

6. gr.

Fyrir vottorð sem Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða gefur út samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og fyrir eiturbeiðnir skal greiða hálft tímagjald. Gjald fyrir þjónustuverkefni greiðist skv. reikningi. Ef um aukin eftirlitsverkefni eða eftirfylgni er að ræða, umfram reglubundið eftirlit og sýnatöku sem gert er ráð fyrir í eftirlitsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða, er heilbrigðiseftirlitinu heimilt að gera sérstakan reikn­ing vegna þeirra, eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

 

7. gr.

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarðasvæðis innheimtir öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari, sbr. fylgi­skjal sem birt er með gjaldskránni. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustu­hætti og mengunarvarnir. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má inn­heimta með fjárnámi.

 

8. gr.

Gjalddagi gjalda samkvæmt 2. gr. er 15 dögum eftir birtingu þessarar gjaldskrár og eindagi 10 dögum síðar. Dráttar­vextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

 

9. gr.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi sem fellur undir gjaldskrá þessa á einum og sama stað, er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald, þá í þeim flokki sem hærri er.

 

10. gr.

Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til reksturs heilbrigðiseftirlitsins skv. 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

 

11. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af aðildarsveitarfélögunum skv. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, 65. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 8. gr. laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002 öðlast gildi við birtingu. Jafn­framt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 699/2021.

 

F.h. heilbrigðisnefndar Vestfjarða, 14. desember 2023,

 

Anton Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vestfjarða.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 10. janúar 2024